Fréttir

Viktor og Heiða með verðlaun í Belgíu
Taekwondo | 23. mars 2026

Viktor og Heiða með verðlaun í Belgíu

Viktor Berg Stefánsson og Heiða Dís Helgadóttir unnu til verðlauna á sterku móti í taekwondo um helgina. Belgian Open mótið er stórt alþjóðlegt mót með um 1300 keppendur sem koma frá öllum heimshornum. Meðal annars eru sterkir keppendur og landslið frá öllum heimsálfum á mótinu sem er eitt af sterkari opnum mótum í heiminum. 

Heiða og Viktor sem keppa í cadet ungmennaflokki 12-14 ára eru með efnilegri keppendum landsins í þessum aldursflokki. Þau æfa bæði  með Keflavík. 

 

Viktor vann til bronsverðlauna í drengjaflokki -37 kg flokki eftir frábæra frammistöðu gegn sterkum keppendum og Heiða vann til gullverðlauna í stúlknaflokki+59kg. Bæði stóðu þau sig einstaklega vel á þessu sterka móti. 

Til hamingju með frábæran árangur

 

Myndasafn