Upplýsingar um komandi ár, skráningar og nýjir æfingatímar
Föstudaginn 4. janúar n.k. verður skráning fyrir næstu önn í taekwondo. Skráningin verður í K-Húsinu við Hringbraut frá 17-19. Nýjir iðkendur skulu koma og skrá sig, iðkendur á biðlista skulu koma og staðfesta skráningu, en allir sem eru á biðlista verða teknir inn á næstu önn. Núverandi iðkendur skulu einnig koma, staðfesta skráningu og greiða fyrir næstu önn hafi þeir ekki þegar gert það.
Mikilvægt er að nýjir iðkendur, bæði þeir sem eru á biðlista og aðrir skrái sig inn á þessum degi vegna aukinnar aðsóknar. Líkur eru á að flokkarnir munu fyllast aftur, en seinast komu færri að en vildu.
Nýjum flokki verður bætt við, Börn A, með iðkendum í 2. bekk og yngri. Þau munu æfa mán-mið-föst frá 16:20-17:00. Börn 1 munu þá æfa frá 17:10-18. Aðrir flokkar ættu ekki að skarast.
Nánari upplýsingar fást á skráningardegi 4. jan frá 17-19