Ungir og efnilegir hópar og landsliðsúrtökur
Ungir og efnilegir poomsae
"Sæl öll,
Næstu helgi fara fram æfingabúðir og úrtökur fyrir Unga & Efnilega og Landsliðið í Pomsae.
15/9 Laugardagur:
14:30-16:00 Allir, bæði U&E og Landsliðið
16/9 Sunnudagur:
10:00-11:00 Allir (U&E og Landsliðið)
11:15-12:30 U&E
Æft verður í íþróttahúsi Ármanns (Skelli, Laugabóli), Laugardal.
Allir eru hvattir til að mæta og spreyta sig.
Landslið Íslands í Poomsae mun æfa á fimmtudögum kl 19:00-20:30 – æft í Ármann, Laugardal.
Æfingahelgar verða einu sinni í mánuði (sjá nánar á vef TKÍ, breytingar verða tilkynntar eins fljótt og hægt er) og munu þá bæði liðin (U&O og Landsliðið)æfa saman og sér. Reglulega verða haldnar úrtökuæfingar og er krafist amk 50% mætingaskyldu. Nauðsynlegt er að tilkynna þjálfara forföll með því að hringja (s: 844 4249) eða senda póst á netfangið taeknilandslid@gmail.com . Sömu reglur gilda fyirr þessa hópa og hjá Sparring landsliðinu, þ.e. gild forföll eru ekki veikindi eða vinna. Skylda er að mæta á mót á vegum TKÍ (sbr Bikarmót 1-3 og Íslandsmót í poomsae).
Írunn Ketilsdóttir
Landsliðsþjálfari í Poomsae"
Ungir og efnilegir Sparring
"Nú fer að hefjast vetrarstarf hjá U & E í kyorugi.
Verða þá haldnar æfingabúðir sem aðeins eru opnar fyrir þá sem mæta á sérstakar úrtökur og standa sig vel þar. Verður þá sem sagt til hópur af krökkum sem fá mjög öflugar æfingar hjá landsliðsþjálfara Íslands í kyorugi, Meisam Rafiei, ásamt aðstoðarmönnum úr landsliðinu. Þessar æfingar eru til þess gerðar að móta framtíðar afreksfólk í TKD og að sjálfsögðu einnig til þess að hafa gaman af. Fá þau einnig sérstaka boli og bakpoka sem eru sérinnfluttir fyrir liðið. Er þetta með svipuðu formi og í fyrra nema að núna verða hóparnir 2 og skiptast eftir aldri, þar sem miðað er við fæðingarárið en ekki daginn.
Úrtökurnar munu fara fram í æfingasal Ármanns við gervigrasið í Laugardal, á þriðjudaginn 18. september kl. 16-17 fyrir minior 9 – 11 ára (árg. 2001-2003) og einnig fimmtudaginn 20. september kl. 16-17 fyrir cadet 12 – 14 ára (árg. 1998-2000). Ef að einhver kemst alls ekki á þessum tímum þá er viðkomandi bent á að hafa samband við landsliðsþjálfara eins fljótt og auðið er og mæta þá á landsliðsæfingu fullorðinslandsliðsins þannig að Meisam geti kíkt á viðkomandi.
Þegar mætt er á úrtökurnar er mikilvægt að athuga:
Viðkomandi þarf a.m.k. að hafa staðist próf fyrir gult belti, 9. gráðu, hafa brennandi áhuga á að æfa TKD, mæta í dobok(taekwondogalla) og með allar hlífar. Hjálmar og brynjur eru þó á staðnum. Iðkendur þurfa ekki að borga fyrir úrtökur eða æfingabúðir hjá U & E hópnum heldur er þetta verkefni sem að TKÍ stendur á bakvið, með aðstoð Ármenninga með láni á aðstöðunni. Verður þó leitast við að dreifa æfingahelgunum á milli félaga.
Fyrsta æfingahelgin verður íþróttamiðstöðinni Varmá hjá Aftureldingu í Mosó, helgin 22-23. September. Dagskráin verður auglýst sérstaklega á næstu dögum.
Til þess að hafa samband við Meisam er e-mail: meisambandari@yahoo.com og GSM: 777-4016. Einnig er hægt að hafa samband við Arnar varðandi upplýsingar, e-mail: arnarb04@ru.is
Bestu kveðjur.TKÍ og Meisam "