Fréttir

Taekwondo | 11. janúar 2009

Taekwondodeild aðalfundur fimmtudagur 22.janúar kl. 20,00

Taekwondodeild aðalfundur fimmtudagur 22.janúar kl. 20,00 í K-húsinu Hringbraut

 

Aðalfundir deilda.

18. gr.

Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

19. gr.

         Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:

              1.     Fundarsetning.

              2.     Kosinn fundarstjóri.

              3.     Kosinn fundarritari.

              4.     Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.

              5.     Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.

              6.     Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða

                       reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.

              7.      Kosningar:

                       a)  Kosinn formaður.

                       b)  Kosnir 4 meðstjórnendur.

                       c)  Kosnir 3 menn í varastjórn

                       d)  Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.

                       e)   Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.

              8.     Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.

9.     Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

10.   Önnur mál

             11.    Fundi slitið.

        Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund

           deildarinnar.

           Öllum er heimilt að bjóða sig fram í stjórnarsetu.

          

           Kveðja stjórn TaekWonDo deildar