Skráning hafin
Skráning er hafin hjá Taekwondo deildinni fyrir komandi vetur.
Skráning iðkenda
- Allir iðkendur hjá Taekwondo Keflavík þurfa að vera skráðir og miðast tímabilið við lok ágúst og til 20.maí 2022.
- Forráðamenn skrá sín börn inn í gegnum Sportabler skráningakerfið og þarf að endurnýja skráningu árlega.
- Skráningar fara fram í gegnum Sportabler sem hægt er að nálgast á heimasíðu Keflavíkur eða á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/keflavik
- Foreldrar þurfa að sækja sér Sportabler appið. Ef það koma upp vandræði með skráningu, þá er mikilvægt að hafa samband við þjónustuver Sportabler í gegnum netspjallið eða í gegnum sportabler@sportabler.com
- Hér má sjá leiðbeiningar um hvernig á að nýskrá sig og kaupa námskeið í gegnum Sportabler.
Verðskrá veturinn 2021-2022
Greiðslur
- Kreditkort - hægt að skipta greiðslum niður á 1 - 9 greiðslur (engin færslugjöld)
- Greiðsluseðill -skipt niður á 9 greiðslur. Athugið að greiðsluseðlar eru sendir í gegnum Motus og leggst seðilgjald á hvern reikning auk þess sem vextir reiknast á greiðsluseðla séu þeir greiddir eftir gjalddaga.
- Greiðslur æfingagjalda eru forsenda þess að iðkandi megi taka þátt í æfingum og mótum á vegum Keflavíkur.
Iðkandi hættir:
- Þegar iðkandi hættir skal senda tilkynningu í tölvupósti á hjordis@keflavik.is þar sem fram kemur nafn og kennitala iðkandans
- Æfingagjöld falla niður frá næstu mánaðamótum eftir að forráðamaður hefur tilkynnt með tölvupósti að iðkandi sé hættur. Ekki nóg að láta þjálfara vita.
- Æfingagjöld fást ekki endurgreidd afturvirkt.
Hvatagreiðslur
- Hvatagreiðslur Reykjanesbæjar eru rafrænar frá og með áramótum 2021 og hafa forráðamenn sem skrá iðkendur á þessu ári val um að haka við í skráningarferlinu um að nota hvatagreiðsluna til lækkunar æfingargjaldinu. Það er á ábyrgð forráðamanna að nýta sér hvatagreiðslurnar.
- Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjanesbæjar Hvatagreiðslur/Incentive payments | Upplýsingavefur sveitarfélagsins Reykjanesbæjar (reykjanesbaer.is)
- Hvatagreiðsla fyrir árið 2021 er 40.000 kr og er hægt að nota hana til niðurgreiðslu á einu æfingargjaldi á ári.