Fréttir

Taekwondo | 5. janúar 2017

Skráning fyrir vorönn 2017 hafin

Skráningar veturinn 2016 - 2017
Opnað hefur verið fyrir rafræna skráningu iðkenda á þessum hlekk 
 
Þjálfarar deildarinnar eru: Helgi Rafn Guðmundsson 4. dan og Kristmundur Gíslason 2. dan
 
Mikilvægt er að allir iðkendur séu skráðir -  Hægt er að prófa æfingar í eina viku.

Eftirfarandi hópar eru í boði veturinn 2016 - 2017

Innfalið í æfingagjöldum eru keppnisgjöld á bikarmót og beltagráðanir fyrir utan svartbeltispróf.

  • Krílanámskeið - 3-5 ára krakkar - fimmtudagar
    Um er að ræða æfingar þar sem börn koma með foreldrunum sínum.
    Æfingar eru einu sinni í viku á fimmtudögum kl. 17:15 og eru búnar kl 18:00.
    Verð kr. 9.900 frá janúar til maí
     
  • Börn 6-7 ára
    Æfingar mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl 16:10.
    1.-2. bekkur grunnskóla, öll belti.
    Æft hefbundið og sport taekwondo með áherslu á leiki, hreyfifærni og grunnatriði í taekwondo. 
    Verð kr. 6.400 á mánuði

 
 

  • 8-9 ára byrjendur eða með lægra en rautt belti
    Æfingar mánudaga og miðvikudaga kl 17:00 og þriðjudaga og föstudaga kl 16:10.
    Einnig stendur til boða að koma á þriðjudögum og föstudögum kl 18:00 í blönduðum hóp. Þemaæfingar verða öðru hverju, það er auglýst á facebook síðu deildarinnar.
    7.400 á mánuði

     
  • 10-11 ára byrjendur eða með lægra en rautt belti 
    Æfingar mánudaga og miðvikudaga kl 18:00 og þriðjudaga og föstudaga kl 16:10.
    Einnig stendur til boða að koma á þriðjudögum og föstudögum kl 18:00 í blönduðum hóp. Þemaæfingar verða öðru hverju, það er auglýst á facebook síðu deildarinnar.
    Verð kr. 7.400 á mánuði
     
  • 10-11 ára rautt belti og hærra
    Æfingar mánudaga og miðvikudaga kl 18:00 og þriðjudaga og föstudaga kl 17:00 - 19:00 (tvöföld æfing).
    Verð kr. 7.400 á mánuði
     
  • 12 ára og eldri. 
    Æfingar mánudaga og miðvikudaga kl 19:00 og þriðjudaga og föstudaga kl 17:00 - 19:00 (tvöföld æfing).
  • Einnig þriðjudaga kl 17-18
    Verð kr. 8.400 á mánuði
  • Taekwondo Þrek
    verð 12.500 fyrir janúar til maí (sérstakt kynningarverð)Þrekæfingar fyrir alla sem vilja komast í betra form en án þess að berjast eða æfa fyrir mót/belti. Fyrir 12 ára og eldri

Smelltu hér til að skrá einstakling í Taekwondo

Þemaæfingar verða öðru hverju, það er auglýst á facebook síðu deildarinnar. Morgunæfingar eru í 7 vikur á álagstíma vegna móta, auglýst síðar á facebook.

Þema:  Farið verður yfir ákveðið þema, þ.e. mini námskeið í einhverjum hluta taekwondo. Æfingar verða auglýstar á facebook síðu deildarinnar.

Fjölskyldu- og systkinafsláttur:

  • Fyrsti skráði iðkandi greiðir alltaf fullt gjald.
  • Annar skráði iðkandi fær 7,5% afslátt af sínu gjaldi og 7,5% af gjaldi fyrsta skráði iðkandi
  • Þriðji skráði iðkandi fær 7,5 % afslátt af sínu gjaldi.
  • Fjórði skráði iðkandi fær 7,5% afslátt af sínu gjaldi

Við skráningu er boðið upp á greiðslu æfingagjalda með kreditkorti og greiðsluseðlum. Ef æfingagjöld eru ekki greidd fara þeir í innheimtu hjá Motus samkvæmt hefðbundnum leiðum Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags.

Við afskráningu einstaklinga á námskeiðum eða hópum gildir sú regla að iðkanndi telst afskráður úr deildinni þegar tölvupóstur hefur verið sendur á stjórn deildarinnar þess efnis, fyrir síðasta dag hvers mánaðar. Ekki er nóg að hætta að borga æfingagjöld, hvort sem er greiðsluseðla eða með greiðslukorti. Einungis er hægt að fá endurgreidd æfingagjöld líðandi mánuð sem afskráning er tilkynnt, og þess einungis að öll æfingagjöld fram til viðkomandi dagsetningar séu greidd.