Fréttir

Taekwondo | 1. nóvember 2007

Scandinavian Open

Næstkomandi föstudag (9.nóv) munu 8 keppendur taekwondodeildar Keflavíkur halda í keppnisferð til Danmerkur.
Mótið, Scandinavian Open, verður haldið í Horsens og er eitt stærsta mót sem haldið er á Norðurlöndunum ár hvert.

Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur fjöldi keppenda frá Keflavík fer erlendis til keppni, en hópurinn er samansettur af mjög efnilegum og sterkum keppendum.
Stífar æfingar hafa verið fyrir mótið, en keppnishópurinn hefur æft a.m.k 4 sinnum í viku síðustu tvo mánuði. Önnur íslensk félög sendu líka keppendur, en samtals fara 23 Íslendingar á mótið.

Keflavíkurliði skipar:

Arnór Freyr Grétarsson
Aron Yngvi Nielsen
Jón Steinar Brynjarsson
Kristmundur Gíslason
Óðinn Már Ingason
Sigfús Hlíðar Þorleifsson
Ævar Þór Gunnlaugsson
Helgi Rafn Guðmundsson

Þjálfarar hópsins verða Helgi Rafn Guðmundsson, Rut Sigurðardóttir og Sigursteinn Snorrason

 

Keppnishópurinn