Sameining æfinga
Sökum lítillar þáttöku á æfingum Garpa (30+) hefur verið ákveðið að sameina æfingarnar með 13+ hópnum kl.19:00. Æfingarnar munu fyrir vikið verða lengri eða til kl.20:30, þ.e. á mánudögum og miðvikudögum. Fyrirkomulag æfinganna á föstudögum er óbreytt. Ef að ofangreindur æfingatími hentar einhverjum einstaklingum illa, er þeim bent á að tala við þjálfara til að finna lausn á málinu.