Pizza og lokahóf á föstudag
Föstudaginn 13. maí verður lokahóf fyrir iðkendur taekwondo deildar Keflavíkur. Mæting í íþróttahúsið á Ásbrú kl 15:30 þar sem verður fjör og sprell til kl: 17:00 þá verður verðlaunaafhending þar sem nemendur ársins eru valdir og heiðraðir. Eftir það verður farið og borðað saman pítsu á Langbest Ásbrú. Það kostar 1000 kr að vera með og greiðist áður en sprellið byrjar, innifalið í því er pítsuveisla og gos.
Miðvikudaginn 19. maí - 30. júní verður sumarönnin. Æfingar verða á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl 18 á Ásbrú.
14-29 júní verður sumarnámskeið skráning er hafin á námskeiðið á ruttkd@gmail.com