Nýtt húsnæði
Á næstu vikum mun taekwondo deildin flytja starfsemi sína í Iðavelli 12. Æfingar hafa verið á Ásbrú síðan 2008/9, þar hefur gengið á ýmsu, en loksins verður hægt að bjóða upp á góða æfingaaðstöðu á góðri staðsetningu.
Hér er frétt á víkufréttum um húsnæðið sem verður samnýtt með judodeild Njarðvíkur, við biðjum alla um að smella á like við fréttina neðst á síðunni og deila henni áfram. http://www.vf.is/ithrottir/bardagahus-verdur-til-i-reykjanesbae/54704
Það mun þarfnast mikillar hjálpar við að koma húsinu í lag og á næstunni verður óskað eftir hjálp frá eins mörgum og hægt er til að koma húsinu í gott stand. Fylgist því vel með á facebook síðunni