Fréttir

Taekwondo | 30. mars 2026

Martin Stamper og Lauren Williams í Keflavík, takk fyrir okkur!

Helgina 27. mars til 29. mars hélt Taekwondodeild Keflavíkur æfingabúðir fyrir Taekwondo fólk á Íslandi. Hátt í 80 iðkendur alls staðar af landinu skráðu sig til leiks enda gesta þjálfararnir stærstu nöfnin í taekwondo heiminum í dag. En það voru þau Lauren Williams og Martin Stamper frá breska landsliðinu, en þetta er í þriðja skipti sem Martin heimsækir deildina og stýrir æfingabúðum. Lauren Williams er ein fremsta Taekwondo kona í heiminum í dag. Þó hún sé aðeins 26 ára er ferilskráin hennar alveg ótrúleg. Silfur á ólympíuleikunum í Tokyo 2020, tveir Evrópumeistaratitlar, tvisvar orðið heimsmeistari ungmenna og fjöldi titla á Grand Slam mótum og Grand Prix mótum. Martin Stamper var einn fremsti keppandi Bretlands og er núna einn af landsliðsþjálfurum Bretlands í Taekwondo. Ferilskráin hans er ekki síðri en hann vann brons á Ólympíuleikunum í London 2012 og silfur á Evrópumótinu í Róm 2008, auk fjölda annarra verðlauna.

Æfingabúðunum er tvískipt annars vegar 11 ára og yngri og svo 12 ára og eldri. Á föstudeginum voru æfingarnar í Bardagahöllinni en salurinn okkar of lítill og þátttaka framar vonum þurfti deildin að flytja sig um set í Akurskóla á laugardag og sunnudag. Þau Martin og Lauren ásamt Helga yfirþjálfara Keflavíkur settu upp æfingarnar á þann hátt að á föstudegi og laugardegi var unnið í tækni, en á sunnudegi voru svo settir upp æfingabardagar þar sem iðkendur áttu að nota þá tækni sem æfðar höfðu verið. Taekwondodeild Keflavíkur vill þakka öllum þeim sem aðstoðu okkur að raungera þennan viðburð, en það voru Skólamatur, Coke á Íslandi, Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur og Tusah á Íslandi, sem og öllum sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg. Hægt er að sjá fleiri myndir frá æfingabúðunum á facebook síðu deildarinnar en ekki síður viljum við benda á instagram reikning Lauren, en þar fjallar hún á skemmtilegan hátt um heimsókn sína til Keflavíkur.

 

Myndasafn