Fréttir

Taekwondo | 30. janúar 2014

Kristmundur og Ástrós voru bestu keppendur Reykajvíkurleikanna

Kristmundur Gíslason og Ástrós Brynjarsdóttir, bæði úr Keflavík voru valin keppendur helgarinnar á Reykjavíkurleikunum sem er alþjóðlegt mót. 

Það var keppt í taekwondo á laugardag og sunnudag. Keflvíkingar mættu með gott lið eins og venjulega og uppskáru ríkulega. Meðal keppenda voru Ástrós Brynarsdóttir og Kristmundur Gíslason, en þau voru nýverið valin íþróttamenn Keflavíkur. Þau áttu mjög gott mót og voru valin íþróttamaður og kona leikanna í taekwondo. Ástrós vann gullverðlaun í bardaga, einstaklingstækni, paratækni og hópatækni. Hún fékk því 4 gull af 4 mögulegum. Hún sýndi fram á einstaklega góða tækni bæði í tækni og bardaga. Hún sigraði báða sína bardaga á 12 stiga reglunni. Sú regla segir að ef 12 stiga munur fæst á milli keppenda í eða við 3. lotu bardagans þá skal sá sigra sem hefur 12 stiga forskotið.

 

Kristmundur sigraði stærsta flokk mótsins með ótrulegum hætti en hann vann alla bardaga á svokallaðri 12 stiga reglunni. Það er ekki algengt að sjá slíkan mun í eins sterkum flokki og þessi flokkur var en Kristmundur hefur verið á góðri siglingu síðustu misseri og meðal annars með gullverðlaun á síðustu 3 mótum.