Fréttir

Taekwondo | 16. febrúar 2015

Keflvíkingar sigursælir á Bikarmóti TKÍ

Bikarmót 2 var haldið í Varmá, Aftureldingu síðustu helgi. Keflvíkingar, sem eru ríkjandi Íslands og Bikarmeistarar, sigruðu heildarstigakeppnina á mótinu. Einnig voru tveir af þremur bestu keppendum mótsins frá Keflavík, Ástrós Brynjarsdóttir og Helgi Rafn Guðmundsson en einnig fékk Halldór Freyr Grettisson úr Ármanni viðurkenningu fyrir góðan árangur.