Fréttir

Taekwondo | 5. apríl 2014

Keflvíkingar Íslandsmeistarar sjötta árið í röð

Tekið af vf.is 

http://www.vf.is/ithrottir/sjotti-islandsmeistaratitillinn-i-rod/61385

Tækwondo deild Keflvíkinga nældi sér í enn eina rósina í hnappagatið um síðastliðna helgi, þegar liðið fagnaði sjötta Íslandsmeistaratitli í liðakeppni í röð í greininni.

Rúmlega 100 keppendur kepptu á mótinu sem haldið var á Selfossi. Keflavík var með stórt lið, en þó vantaði marga burðarstólpa liðsins þar sem m.a. fimm svartbeltingar og Íslandsmeistarar voru á HM unglinga í Taiwan. Mótið var mjög spennandi en svo fór að Keflavík sigraði mótið í liðakeppninni og sannaði enn einu sinni yfirburði sína í sportinu.

 

nánari úrslit eru á tki.is