Keflvíkingar Íslandsmeistarar í taekwondo
Um helgina var haldið Íslandsmót í poomsae (tækni). Keflvíkingar mættu til leiks með marga af sínu bestu keppendum þó nokkra hafi vantað. Keppendur Keflavíkur stóðu sig með mikilli prýði og sigruðu marga flokka. Ástrós Brynjarsdóttir og Bjarni Júlíus Jónsson, bæði úr Keflavík voru valin keppendur mótsins, en þau unnu þrenn gullverðlaun hvor í þeim þremur greinum sem keppt var í. Þegar uppi var staðið eignaðist Keflavík fjölda Íslandsmeistara og sigruðu mótið með minnsta mögulega mun. Í stigakeppni félaga voru Ármann og Keflavík jöfn með 118 stig, en þar sem Keflavík vann til fleiri gullverðlauna ( 10 á móti 6) þá fengu þeir titilinn: Íslandsmeistarar félaga 2012 í tækni. Keflvíkingar unnu einnig liðakeppnina í Íslandsmótinu í bardaga sem haldið var í vor og eru því án nokkurs vafa sterkasta taekwondo félag landsins.
Keflvíkingar hafa samtals 5 sinnum unnið liðakeppni á Íslandsmóti sem er frábær árangur.