Keflvíkingar í landsliðið í tækni
Um helgina voru nýju landsliðsþjálfarar Íslands í tækni með úrtökur fyrir landsliðin og undirbúningshópa landsliðsins. Þjálfararnir eru systurnar Edina (yfirþjálfari) og Lisa Lents (aðstoðarþjálfari). Þær eru frá Danmörku og eiga langan og árangursríkan feril sem keppendur og alþjóðlegir dómarar.
Tækni eða poomsae eins og það heitir á kóresku er önnur af tveimur aðalkeppnisgreinum taekwondo, en hin er ólympískur bardagi. Í tækni þá er keppendum gefin einkun eftir hversu nákvæmlega og vel þeir framkvæma ákveðna samsetningu bardagahreyfinga.
Samtals tóku rúmlega 80 manns þátt í úrtökunum á föstudag og komust að lokum 28 í landsliðið en einnig var valið í undirbúningshóp eða svokallað "Talent Team" sem mun vinna markvisst að því að komast í landsliðið síðar meir. Keflvíkingar voru með marga iðkendur sem reyndu að komast inn og að lokum komust 11 í landsliðshópinn og 10 í Talent Team. Hópinn má sjá hér að neðan
Landslið
Ástrós Brynjarsdóttir
Landsliðsmenn úr Keflavík
Úrtökuhópurinn
Talent Team hópurinn
Landsliðið
Landsliðsmenn úr Keflavík