Keflvíkingar á brotamóti Ármanns
Keflvíkingar stóðu sig frábærlega á brotamóti Ármanns sem var haldið miðvikudaginn 20.maí.
Victoría Ósk Anítudóttir varð í 1. sæti í þrautabraut í sínum aldursflokki og 4. sæti í speed brake.
Óðinn Már Ingason varð í 1. sæti í þrautabraut og speed brake í sínum aldursflokki.
Þröstur Ingi Smárason varð í 2. sæti og í þrautabraut og speed brake í sínum aldursflokki.
Þessi árangur skilaði Keflvíkingum 3. sæti í heildarkeppni félaga á mótinu sem er mjög gott miðað við einungis þá þrjá keppendur sem fóru á mótið.