Fréttir

Taekwondo | 10. apríl 2018

Keflavik Open / Æfingabúðir með Stephen Jennings

Skráning fer fram með því að smella á hlekkinn hérna

Leggja þarf inn gjöldin á

Kt. 561112-1420

Banki: 0542-14-402893 

með nafni iðkanda í skýringu og senda kvittun á thoreygudny@simnet.is

Keflavík Open 2018 - Æfingamót fyrir alla

Æfingabúðir með Stephen Jennings

Það er komið að Keflavík Open æfingamótinu og æfingabúðunum. Í ár fáum við góðan gest en það er Stephen Jennings. Stephen var í landsliði Bretlands í áraraðir, en er núna aðalþjálfari karlalandsliðs Bretlands sem er eitt sterkasta landslið Evrópu. Martin mun sjá um allar æfingarnar á æfingabúðunum í kringum mótið í ár. Hér að neðan má sjá dagskrá æfingabúðanna, mótsins og fyrirkomulag.

 

Föstudagurinn 4. Maí

18-19 Yngri minor (matur eftir æfinguna)

19-20:30 -  Cadet og eldri (matur eftir æfinguna)

Hægt er að gista á staðnum. Sjá neðar

 

Laugardagurinn 5. Maí

9 - Morgunmatur fyrir þá sem gista

10-11:30 Yngri minor

11:30 - 13:00 Cadet og eldri æfing

Hádegismatur eftir æfingarnar og frítt í sund fyrir þá sem vilja (sundlaugin er í næsta húsi, en ATH að 9 ára og yngri þurfa að vera í fylgd foreldra)

15 - 17:00 Cadet og eldri æfing

ATH að ekki er hægt að gista á laugardagskvöldið

 

Sunnudagurinn 6. Maí - Keflavik Open

10- Keflavik Open - Leikskólakrakkar

11 - Keflavik Open - Yngri

13- Keflavik Open - Cadet og eldri

Verð fyrir yngri (11 ára og yngri) - 6.000 Innifalið allar æfingar, mótið 3 máltíðir, sundferð, gisting, og myndataka.

Verð fyrir eldri (12 ára og eldri) - 7000. Innifalið allar æfingar, mótið 3 máltíðir, sundferð, gisting, og myndataka.

 

Grunnupplýsingar

Staðsetning: Íþróttahús Keflavíkur við Sunnubraut 34 í Reykjanesbæ - sjá kort

Sundlaug Reykjanesbæjar, Vatnaveröld er á móti íþróttahúsinu og þeir sem taka þátt í æfingabúðunum fá frítt í sund á laugardeginum.

Dagsetning: Föstudag, laugardag og sunnudag 4.-6. maí 2018

Skráning: Skráning er á hlekknum hérna

Skráningarfrestur: er til miðvikudagsins 2. maí

Nánari upplýsingar: helgiflex@gmail.com

 

Gjöld: Verð fyrir yngri (11 ára og yngri) - 6.000 Innifalið allar æfingar, mótið 3 máltíðir, sundferð, gisting, og myndataka.

ATH að 9 ár ára og yngri þurfa að hafa forráðarmann á staðnum til að mega gista. 9 ára og yngri þurfa að hafa forráðarmann með í sund eða fá einhver aðstoðarmanna æfingabúðanna til að taka ábyrð á þeim í sundi.

Verð fyrir eldri (12 ára og eldri) -  7000. Innifalið allar æfingar, mótið 3 máltíðir, sundferð, gisting, og myndataka.

Verð fyrir 1 æfingu er 2.500 kr

Verð fyrir bara mótið er 2.500 kr

Fjölskylduafsláttur ef 50% kr af þeim sem koma umfram fyrsta einstakling fyrir þá sem taka allar æfingabúðirnar.

Lagt er inná reikningsnúmer deildarinnar ekki seinna en þriðjudaginn 2. maí:

Kt. 561112-1420

Banki: 0542-14-402893

Setjið nafn keppanda í skýringu og sendið kvittun á thoreygudny@icloud.com

Vinsamlegast mætið a.m.k. 20 min fyrir byrjun ykkar flokks til að ganga frá greiðslu og gera iðkendur tilbúna fyrir mótið.

Gjaldgengi: Allir eru velkomnir á mótið. Jafnvel þeir sem eru með hvítt belti eða þeir sem eru ekki að æfa geta tekið þátt. Það er bara krafa um að vera í íþróttafötum. Þeir sem eru með gráðu í taekwondo skulu þó mæta í dobok með sitt belti.

Verðlaun: Allir þátttakendur fá verðlaunapening fyrir þátttöku. Auk þess ætla dómarar að veita viðurkenningar fyrir sérstaklega góða íþróttamennsku, tækni, ákveðni eða aðra þætti sem þeim fannst keppendur bera af í.

Myndataka: Það verður myndataka á staðnum á Keflavík Open mótinu þar sem allir keppendur geta fengið mynd af sér með verðlaunin sín, með foreldrum eða einhverjar uppstilltar myndir. Allar myndirnar fara á facebook og er fólkinu frjálst að nota þær myndir.

#keflavikopen2018: Við hvetjum fólk til að taka eigin myndir af mótinu/æfingabúðunum og setja á Instagram undir #keflavikopen2018 og valin verður ein mynd í lok helginnar sem fær verðlaun. ATH að myndataka er eingöngu leyfileg á opinni dagskrá æfingabúðanna. Myndataka og notkun síma/myndavéla í búningsklefum er stranglega bönnuð.

Veitingasala: Það verður sala á veitingum á staðnum. Við hvetjum alla keppendur og fjölskyldumeðlimi til að versla á staðnum.

 

Flokkaskiptingar

Mótinu á sunnudag verður startað eftir flokkum ATH að þetta gæti breyst m.v. skráningu og verður auglýst á það tölvupóstfang sem er skráð á.

  • Leikskólaaldur kl 10

  • 6-11 ára kl 11

  • 12 ára og eldri 13

Krakka taekwondo 11 ára og yngri

Krakka-Taekwondo eru sérstök mót með aðlöguðum reglum og fyrirkomulagi sem er  ætlað börnum og byrjendum í taekwondo. Einkunnarorð þessarar aðferðar eru „Allir með” og eru til að hvetja til þátttöku í taekwondo móti á skemmtilegan hátt.

Hvernig gerum við það?

  1. Þátttakendur keppa í þremur skemmtilegum greinum: þrautabraut, grunntækni (eða poomsae) og svo bardaga.

  2. Fyrirkomulagið er hvetjandi. Dómarar og aðstoðarmenn er þarna til að aðstoða þátttakendur við að bæta sig.

  3. Stig eru ekki talin í bardaganum. Einblínt er á góða tækni, þróun einstaklingsins og íþróttamennsku.

  4. Framkoma er jákvæð. Dómarar eru jákvæðir og opnir gagnvart þátttakendum.

  5. Endurgjöf. Þátttakendur fá endurgjöf frá dómurum og aðstoðarmönnum um hvað þeir gera vel og hvað er hægt að bæta.

  6. Virðing og íþróttamennska. Þátttakendur skulu heilsa keppinautum og dómurum.

  7. Foreldrar með. Foreldrar geta fylgt þátttakendum að vellinum ef þeir vilja það. Hvatt er til myndatöku (#keflavikopen2018) og foreldrar skulu hvetja á jákvæðan hátt.

  8. Hraði og skilvirkni. Mótið gengur hratt fyrir sig með því að nýta vellina betur og vegna fyrirkomulags þá þarf ekki marga dómara á hvert keppnisgólf og þannig má betur nýta pláss og tíma allra.

  9. Ekki er krafa um að kunna poomsaein til að keppa í þeirri grein. Þau yngstu og þau sem ekki kunna poomsae keppa í grunnhreyfingum t.d. grunnvörnum, spörkum og höggum. Dómararnir sýna keppendum hvernig tæknin er gerð og hvernig fyrirkomulagið er.

  10. Iðkendur geta skorað á foreldra sína eða vini og keppt við þau í þeim greinum sem verða í boði.

 

Æfingamót unglinga og fullorðna 12 ára og eldri

Á þessu móti er fyrirkomulag svipað og á barnamótinu. Það sem verður bætt við er keppni í gullstigi. Þar keppa tveir keppendur saman í gullstig. Það er þannig að sá sem skorar fyrr sigrar lotuna. Sá sem er fyrri til að sigra 2 lotur stendur uppi sem sigurvegari í þeirri viðureign. Við verðum hugsanlega með einhverja bardaga með rafbrynjum og hvetjum við því þá sem eiga raftáslur að koma með þær með sér.

 

Keppendur keppa líka í þrautabraut og poomsae/grunntækni verður m.v. kunnáttu hvers og eins.

 

Annað

Taka með

 

  • Hlífar

  • Dobok og belti

  • Nóg af auka fötum

  • Vatnsbrúsa

  • Nesti

  • Tannbursta, dýnu og kodda (þeir sem gista)

  • Handklæði og sundföt (þeir sem ætla í sund)

  • Æfingadagbók