Fréttir

Taekwondo | 18. mars 2015

Keflavík Íslandsmeistarar í 10. sinn

Keflavík sigruðu liðakeppni á Íslandsmóti í taekwondo í 10 sinn. Það er mikill heiður fyrir félagið sem hefur verið árangursmesta félag landsins í áraraðir. Mótið var haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut og um hundrað keppendur tóku þátt frá 8 félögum. Ástrós Brynjarsdóttir úr Keflavík var valin kvenkeppandi mótsins og margir Keflvíkingar áttu frábæra frammistöðu.