Íslandsmót 19 mars, skráningarupplýsingar
ÍSLANDSMÓT Í SPARRING 19 MARS
Mótið verður haldið í Laugabóli, íþróttahúsi Ármanns Engjavegi 7, þann 19. mars næstkomandi. Mótið hefst kl. 10.00 og fer fram á tveimur gólfum. Keppt verður í karla-og kvennaflokkum, minior, junior, senior og superior, eftir þátttöku. Auk þess verður keppt í 5 manna liðakeppni.
Skráningarfrestur er til 11 mars og skila þarf skráningarmiða og keppnisgjöldum 2000kr til kennara í síðasta lagi þann dag. Ekki verður tekið við skráningum eftir 11. mars.
Minior er 12-14 ára, junior að 18 ára, senior yfir 18 og superior yfir 30 fyrir þá sem ekki eru með svarta beltið og hafa ekki verið fastamenn í landsliði. Aldur miðast við mótsdag. Bardagar verða 2x2 mínútur, 30 sek. hlé. Úrslit 3x2mín, 1 mín hlé.
Í lok einstaklingskeppni fer fram liðamót. Hvert félag skráir 3 KK og 2 KVK í 1 lið (1 kk í undir 70 kg, 1 kk í 70-80 kg, 1 kk í 80+ kg, 1 kvk -65 kg og 1 kvk í 65+), belti og aldur skiptir ekki máli. Hver keppir í 1 mínútu, samtals 5 mínútur á lið plús 10 sekúndur milli keppenda. Ef allir keppendur í liðinu taka þátt í einstaklings er ekki greitt sérstaklega fyrir þátttöku í liðamóti en annars er greitt kr. 4.000 fyrir þátttöku fyrir hvert lið. WTF keppnisreglur gilda. Liðamótið er útsláttakeppni nema ef einungis 3 lið eru skráð til þátttöku þá er Round Robin. Stigagjöf heldur áfram að telja og gildir heildarstig liðsins. Komi til að 2 eða fleiri lið eru jöfn að stigum sigrar það lið sem nær flestum stigum frá sem flestum liðsmönnum.
Vigtun og dómarafundur fer fram 18. mars kl. 17:00 á mótsstað og vigtun fyrir þá sem ekki komast á föstudeginum fer fram kl. 9 til 9:15 á keppnisdag.
Skylda er að vera með eftirfarandi hlífar: Hjálmur, brynja, tannhlíf, punghlíf og samsvarandi kvenútgáfur, handa-fótahlífar og hanskar. Táslur verða leyfilegar en ekki skylda. Mótstjórn áskilur sér rétt til að fara yfir gerð og tegund hlífanna og mun ekki leyfa keppendum að taka þátt án allra hlífa. Þessar reglur gilda fyrir alla flokka, alla keppendur, án undantekninga. Brynjur og hjálmar verða á staðnum og verður einungis notast við þær brynjur og hjálma.