Fréttir

Taekwondo | 21. október 2007

Fyrsta TSH mótinu lokið

Fyrsta af þremur mótum í Bikarmótaröð Trésmiðju Snorra Hjaltasonar (TSH) í taekwondo var haldið í íþróttahúsinu að Varmá, Mosfellsbæ síðastliðinn laugardag. Keflvíkingar mættu þar með stærsta liðið, en 43 keppendur voru skráðir frá Keflavík. Samtals voru keppendur um 140. Það var hart barist í þremur keppnisgreinum; formum (poomsae), þrautabraut, og bardaga (kjorugi). Samanlagður árangur Keflvíkinga var langtum sá besti. Keflvíkingar komust í verðlaunasæti í nánast öllum flokkum sem þeir sendu keppendur í. Samtals unnu Keflvíkingar sér til 25 verðlauna. Keflvíkingurinn Jón Steinar Brynarsson var keppandi mótsins á móti 13 ára og eldri, en hann vann báða keppnisflokkana; bardaga og form.

Á móti 12 ára og yngri varð Keflvíkingurinn Aron Yngvi Nielsen jafn að stigum um keppanda mótsins og Mosfellingurinn Gísli Gylfason. Þótti undarlegt val dómara, en Gísli var valinn keppandi mótsins. Þess má geta að Aron er bikarmeistari síðasta tímabils og einn sterkasti keppandi deildarinnar þrátt fyrir ungan aldur. Samanlagður árangur þriggja TSH móta mun síðan úrskurða Bikarmeistara 2007-2008 og eru bæði Aron og Jón Steinar komnir með mörk stig í pottinn hvað það varðar.

Næsta TSH mót verður haldið í byrjun næsta árs og munu Keflvíkingar þá skarta enn stærra og sterkara liði en nokkru sinni fyrr.

Deildin vill þakka reyndari iðkendum sem hjálpuðu mikið til. Ennfremur þakkar deildin foreldrum og aðstandendum fyrir mikla hjálp og stuðning sem lét allt ganga vel fyrir sig á mótstað.

Myndir af mótinu eru komnar á myndasíðuna