Fréttir

Taekwondo | 2. apríl 2008

Fullt hús Keflvíkinga í landsliðið

Taekwondo samband Íslands hélt um helgina úrtöku fyrir landsliðið í bardaga.

10 Keflvíkingar mættu á úrtakið og komust allir í lið, þar af 4 sem komust í A-liðið. Þá var Helgi Rafn Guðmundsson valinn fyrirliði liðsins

Tveir aldurshópar æfa með landsliðinu, undir og yfir 15 ára aldri.

Samtals vorum tæplega 50 sem fóru í úrtökurnar frá flestum félögum landsins, en 32 komust síðan í A eða B landsliðið.

Þeir sem komust í liðið frá Keflavík eru eftirfarandi:

Helgi Rafn Guðmundsson
Aron Yngvi Nielsen
Arnór Freyr Grétarsson
Jón Steinar Brynjarsson
Brian Johannessen
Rut Sigurðardóttir
Kristmundur Gíslason
Hrefna Jónsdóttir
Guðmundur Jón Pálmason
Ævar Þór Gunnlaugsson