Foreldraæfing og námskeið fyrir fullorðna
Mynd af foreldraæfingunni sem var hjá taekwondodeild Keflavíkur í dag. Yfir hundrað manns mættu og tóku þátt í leikjum og fjöri. Við þökkum öllum fyrir góða og skemmtilega æfingu.
Næstkomandi mánudag hefst taekwondo námskeið fyrir fullorðna. Námskeiðið verður kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 19 og verður í 5 vikur. Við hvetjum alla sem vilja kynnast taekwondo á rólegri nótum að prófa æfingu á mánudag.