Fréttir

Taekwondo | 22. desember 2008

Beltaprófi lokið, jólafrí

Um helgina var haldið stórt beltapróf í Akademíunni.

94 einstaklingar úr Keflavík og Grindavík tóku próf og stóðust allir prófið sitt.

Seinnipart laugardags stóðst Rut Sigurðardóttir próf fyrir 2. dan. Hún tók erfitt og gott próf, og stóð sig mjög vel.

Til hamingju allir próftakar!

Jólafrí er komið, en landsliðsmenn munu þó æfa um jólirnar fyrir Norðurlandamótið sem verður haldið eftir rúmlega mánuð. Sjá nánar um það á tígrasíðunni  http://sites.google.com/site/keflaviktigers

Æfingar hefjast aftur 9. janúar, sjáumst þá.

Jólakveðja, kennarar og stjórn.

Helgi, Rut og master Sigursteinn