Fréttir

Taekwondo | 1. desember 2012

Beltapróf

 

Skoðið vel allar beltakröfur, verður próf um næstu helgar fyrir þá sem eru tilbúnir. Það er stöðumat í gangi á öllum æfingum. 
 
Næsta föstudag kl 19-20 verða rauð og blá belti. 
Laugardag kl 12-14 Græn, appelsínugul, gul belti.
 
Helgina þar á eftir verða hvítu beltin.
 
Skoðið vel um beltapróf á síðunni. Eingöngu þeir sem fá boð um að koma í prófið eiga að mæta, byggt á mætingu, getu, kunnáttu og stöðumati sem er að fara fram á æfingum og síðustu mótum. Þeir sem kunna ekki eða framkvæma / hegða sér ekki nógu vel fara ekki í próf fyrr en það hefur verið lagað.
 
Prófin munu vera styttri en venjulega og byggjast að miklu leyti á stöðumatinu, því er mikilvægt að mæta á æfingarnar undirbúin/n og ákveðin/n. 
 
Ef einhver kemst ekki á viðkomandi tímum, látið mig vita og þið verðið þá á öðrum tíma.