Fréttir

Taekwondo | 30. nóvember 2005

Beltapróf

Beltapróf voru haldin fyrir Taekwondo deild Keflavíkur föstudaginn 25. nóvember í Myllubakkaskóla. Alls þreyttu 29 próf að þessu sinni og stóðu sig allir með prýði. Prófdómari var meistari Sigursteinn Snorrason (4-dan). Var hann ánægður með frammistöðu iðkanda, en var undrandi að einungis væru strákar skráðir til prófs að þessu sinni. Að beltaprófi loknu voru allir ánægðir með nýju belta gráðuna og að vera komnir með nýjan lit á beltin sín.

Kv. Þórir Elvar