Fréttir

Taekwondo | 4. nóvember 2014

Ástrós stóð sig vel á HM

Ástrós Brynjarsdóttir, taekwondo kona Íslands og íþróttamaður Reykjanesbæjar keppti í gær á heimsmeistaramótinu í taekwondo tækni. Þar keppti hún í unglingaflokk og það voru 22 sterkustu keppendur heims sem höfðu unnið sér þátttökurétt í hennar flokki. Í þessari grein þurfa keppendur að gera fyrirfarm ákveðna runu bardagahreyfinga. Það skiptir miklu að þekkja öll smáatriði hreyfinganna mjög vel, hafa mikinn liðleika, kraft, jafnvægi og ákveðna framkomu. Ástrós hefur aldrei tapað í þessari grein á Íslandi.
Fyrirkomulagið er þannig að til að byrja með þurfti að skera 10 keppendur út til að komast í undanúrslit. Hver og einn keppandi kom inn á gólfið og framkvæmdi tæknina (form). Það þarf að framkvæma tvö form í hverri umferð og gefa dómarar einkunn eftir ákveðinni forskrift. Ástrós stóð sig mjög vel og var með 4. hæstu einkunina eftir fyrstu umferð og komst því í undanúrslit (topp 12 sætin komust áfram). 
 
Í næstu umferð framkvæmdu allir önnur tvö form. Þar stóð Ástrós sig einnig vel en náði ekki eins góðri frammistöðu og áður og var með 10. hæsta árangurinn. Það þurfti 8. til að komast áfram í úrslit. Smávæginleg mistök geta vegið þungt í þessari grein. Ástrór hefur æft stíft fyrir þetta mót og náð ótrulegum árangri. Hún mun eflaust láta til sín taka á Íslandsmótinu í tækni sem haldið verður í lok nóvember í Reykjanesbæ. 
 
Írunn Ketilsdóttir úr Ármanni var einnig að keppa í -50 ára aldursflokki. Hún stóð sig mjög vel og komst í 8 manna úrslit. Þegar hún hafði gert sín form þá endaði hún í 5 sæti sem er stórgóður árangur og greinilegt að nýráðnir landsilþjálfarar Íslands í tækni eru að byggja sterkar stoðir í greininni á Íslandi.