Ástrós Brynjarsdóttir er Íþróttamaður Reykjanesbæjar 2013
Ástrós Brynjarsdóttir var valin íþróttamaður Reykjanesbæjar 2013.
Hún er núverandi taekwondo kona Íslands (annað árið í röð), íþróttakona Keflavíkur og íþróttamaður Reykjanesbæjar. Þetta er bara til að kóróna frábæran árangur hennar og taekwondo deildar Keflavíkur á árinu. Virðing og vitund gagnvart þessum árangri og bardagaíþróttunum í Reykjanesbæ er aðdáunarverður.
Innan Reykjanesbæjar eru yfir 4.000 íþróttamenn og tæplega 300 Íslandsmeistarar. Það er því mikill heiður að uppskera slíka viðurkenningu.