Fréttir

Taekwondo | 10. maí 2015

Ástrós á pall í Danmörku

Ástrós Brynjarsóttir var að keppa á opna danska meistaramótinu í tækni. Hún er þar úti ásamt 5 öðrum landsliðskeppendum og landsliðsþjálfurum Íslands.

 
Ástrós var í erfiðum og stórum flokki en þar voru margar bestu taekwondo stelpur í Evrópu að keppa. Ástrós endaði í þriðja sæti en sú sem sigraði flokkinn varð í 3. sæti á síðasta Heimsmeistaramóti.
 
Íslenska liðið fékk 4 verðlaun á mótinu.