Árangurinn á EM ungmenna
21-25 ágúst var haldið Evrópumót ungmenna í taekwondo á aldrinum 12-14 ára. Fjórir íslenskir keppendur tóku þátt en með í för voru einnig þjálfarar og fylgdarlið.
Ágúst Kristinn Eðvarðsson, Keflavík -33kg
Ástrós Brynjarsdóttir, Keflavík -47 kg
Bjarni Júlíus Jónsson, Keflavík –65 kg
Helgi Valentín Arnarsson, Fram +65 kg
Meisam Rafiei, landsliðsþjálfari
Helgi Rafn Guðmundsson, þjálfari
Kolbrún Guðjónsdóttir, fylgdarlið
Vania Koleva, fygldarlið
Þórey Guðný Marinósdóttir, fygldarlið
Á fyrsta degi keppti Ágúst Kristinn. Hann er gífurlega efnilegur ungur taekwondo kappi sem hefur staðið sig mjög vel á síðasta ári. Ágúst sat hjá í fyrsta bardaga og keppti svo við keppanda frá Tyrklandi. Ágúst sótti og hélt sig við leikáætlunuina en Tyrkinn var einfaldlega of sterkur fyrir Ágúst. Tyrkinn endaði svo með bronsverðlaun í flokkinum.
Tveimur dögum síðar keppti Ástrós Brynjarsdóttir. Ástrós er ein sigursælasti keppandi Íslands, en hún var meðal annars valin taekwondo kona Íslands 2012. Ástrós sat hjá í fyrstu umferð og keppti svo við stúlku frá Hvíta Rússlandi. Ástrós var svoldið lengi í gang þar sem Hvítrússinn komst yfir í fyrstu lotu, en svo náði Ástrós sér á strik og hélt forrystu það sem eftir var bardagans og sigraði .
Næst keppti Ástós við Svíþjóð, en sú stúlka var feykigóð. Ástrós var yfir eftir fyrstu lotu og bardaginn var hnífjafn allt þar til um ein mínúta var eftir af bardaganum en þá komst sú sænska yfir og náði að halda forystu þar til bardaginn var búinn. Sænska stúlkan náði silfurverðlaunum á mótinu. Ástós endaði því í 5. sæti.
Daginn eftir kepptu Bjarni Júlíus og Helgi Valentín. Báðir hafa þeir staðið sig mjög vel á mótum innanlands og erlendis á síðustu misserum. Fyrst keppti Bjarni við Pólland. Þeir voru jafnokar í bardaganum en mikið vantaði upp á dómgæsluna þar sem þrjú höfuðspörk Bjarna voru ekki talin og Pólverjanum var dæmdur sigur. Pólverjinn fékk svo bronsverðlaun í flokknum.
Skömmu síðar keppti Helgi Valentín við Úkraínu. Úkraínumaðurinn var yfir nánast allan bardagann, en í síðustu lotu náði Helgi að jafna metin þegar lítið var eftir. Þar sem bardaginn var jafn að stigum þurfti að grípa til bráðabana, en þá er aukalota þar sem sá sem skorar fyrst sigrar bardagann. Helgi sótti hart og náði að skora og sigraði því bardagann.
Í næsta bardaga keppti Helgi við öflugan keppanda frá Króatíu. Helgi sótti vel en Króatinn sigraði þegar Helgi gat ekki haldið áfram í annari lotu. Helgi endaði í 5. sæti í flokknum.
Landsliðsþjálfarinn Meisam Rafiei var ánægður með árangurinn og sagði að keppendur stóðu sig mjög vel, voru með góða tækni og börðust vel. Hann var ánægður að keppendur hlustuðu vel á leiðbeiningar og sýndu íþróttamannslega hegðun. Hann var þá líka mjög ánægður að fá tvo keppendur upp úr fyrstu og annarri umferð á mótinu, en það er sjaldgæft á svona sterku móti. Hann segir að framtíð taekwondo á Íslandi sé í unga fólkinu, en efnilegasta taekwondo fólkið á Íslandi er enn ungt að aldri.