Æfingarnar með master Jamshid heppnuðust vel
Master Jamshid Mazaheri 7. gráðu svartbeltis taekwondo meistari var með allar æfingarnar í Keflavík á föstudag. Stjórn og foreldrafélag buðu iðkendum á æfingarnar sér að kostnaðarlausu og var það Eduardo landsliðsþjálfari sem flytur hann til landsins til að þjálfa landsliðið í tækni. Það er því mikill heiður að hann skulu kenna hjá okkur. Mikið fjölmenni var á æfingunum og lærðu flestir eitthvað nýtt.