Fréttir

Taekwondo | 29. janúar 2010

Æfingarbúðir frestast.

Vegna þess að Björn Þorleifsson slasaðist á Brasilian Jui Jitsu æfingu í gærkvöldi þá er hann því miður algjörlega ófær um að halda æfingabúðirnar núna um helgina hjá Taekwondo-deild Keflavíkur. Prófað var að sjá til hvort hann yrði skárri í morgun en hann kemst varla fram úr rúmi.
Æfingabúðirnar verða haldnar en verið er að finna nýjan tíma fyrir þær.
Ef að sá tími hentar ekki verður hægt að fá þátttökugjaldið endurgreitt.
Fyrir hönd TKÍ og Björns biðjumst við afsökunar á þeim óþægindum sem af kynnu að hljótast.