Fréttir

Taekwondo | 7. október 2012

Æfingabúðir TKÍ

Tekið af síðu TKÍ (tki.is)

 

Sjálfsvarnarnámskeið með Henrik Frost

 

Sjálfsvarnarnámskeið með Henrik Frost dagana 13 og 14 OKT 2012
Námskeiðið verður haldið hjá taekwondo deild Ármann í laugardal
Henrik Frost er med 6. dan í taekwondo, hann er kennari dönsku lífvarðanna og er með áratuga reynslu í sjálfsvörn. 

Laugardagur 13.10.2012

 

08:30 – 11:00 Fullorðnir 13+ (verð 2.000,-)

 

  • Hanbon kireugi sem sjálfsvörn
  • Saebon kireugi sem sjálfsvörn

12:30 – 14.00 Börn (7-12 ára) (verð 1.500,-)

  • Hanbon kireugi sem sjálfsvörn

14:30 – 16:30 Konur á öllum aldri (verð 2.000,-)

  • Sjáfsvörn fyrir konur

16:45 – 18:15 Allir saman (verð 2.000,-)

  • Árangursríkt hosinsul/sjálfsvörn

 

Sunnudagur 14.10.2012

10:00 – 12:00 Fullorðnir 13+ (verð 2.000,-)
• Árangursrík notkun/val á réttri tækni útfrá fjarlægð og fellur.

13:00 – 15:00 Börn (7-12 ára) (verð 1.500,-)
• Læra að skilja grundvallaratriði varðandi líkamshreyfingu og hvernig hægt er gjörbylta getu sinni til að búa til orku í allri hreyfitækni

15:30 – 17:30 Fullorðnir 13+ (verð 2.000,-)
• Stress æfing og stöðu leikir (settar upp ákveðnar aðstæður).

Verð fyrir alla helgina:
Fullorðnir 13+ (karlar 4 æfingar 4.500,-) (konur 5 æfingar 5.000,-)
Börn 7-12 ára (strákar 3 æfingar 2.500,-) (stelpur 4 æfingar 3.000,-)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nánar um það efni sem farið er í 

 

Hanbon kireugi sem sjálfsvörn

  • Eins-skrefs bardagi er oftast æfður sem sýningaratriði, en það er vel hægt að uppfæra hann og æfa grunntæknina á hærra level, þannig að skilningur á notagildi hans aukist.
  • Í þessari æfingu er eins-skrefs bardaginn æfður á hærra leveli, með það að markimiði að auka skilning á notagildi hans í sjálfsvörn.
  • Byrjað er á grunntækni en færum það svo upp á hærra level með ”full contact” í hjálmum og hönskum. Þar sem markmiðið er að þú gerir þér grein fyrir hvort eins-skrefs bardaginn hafi eitthvert notagildi í sjálfsvörn.
  • Æskilegt er að vera með hjálm með andlitsgrímu og hanska

 

Saebon kireugi sem sjálfsvörn

  • þriggja-skrefa bardagi er oftast æfður á mjög formfastan hátt og útfrá sjálfsvarnarlegu sjónarmiði ónothæft form.
  • Í þessari æfingu er þriggja-skrefa bardaginn æfður á hærra leveli, með það að markimiði að auka skilning á notagildi hans í sjálfsvörn.
  • Byrjað er á grunntækni en færum það svo upp á hærra level með ”full contact” í hjálmum og hönskum. Þar sem markmiðið er að þú gerir þér grein fyrir hvort þriggja-skrefa bardaginn hafi eitthvert notagildi í sjálfsvörn.
  • Þar að auki ættirðu að fá fullt af nýjum hugmyndum hvernig væri hægt að gera æfingar í þriggja skrefa bardaga skemmtilegri
  • Æskilegt er að vera með hjálm með andlitsgrímu og hanska

 

Sjáfsvörn fyrir konur

  • Þessi æfing er fyrir konur, þar sem útgangspunkturinn er meðal annars nauðgunaraðstæður.
  • Hvernig er best að forðast að verða fórnarlamb, og hvernig á að æfa það á sem bestan hátt.
  • Lærðu hvernig líkaminn og heilinn bregst við í svona aðstæðum.

 

Árangursríkt hosinsul/sjálfsvörn í samræmi við námsefni (Danska Taekwondosambandsins)

  • Í þessari æfingu er farið í einfalda, en árangursríka sjálfsvarnartækin móti árás og hópárás (námsefni DT).
  • Markmiðið er ekki að þetta líti vel út heldur að það virki.
  • Allar æfingarnar eru miðaðar við almenna Taekwondo tækni ekki er farið í flóknar æfingar í að losa sig úr lásum sem eru frá öðrum íþróttagreinum (væntanlega BJJ).
  • Auk þess að æfa einstaka tækni þá er einnig kynntar meginreglur í æfingum í sjálfsvörn og hvernig prófa á í hosinsul (sjálfsvörn).
  • Þessi æfing er aðallega byggð á tveggja manna æfingum.

 

 

Árangursrík notkun á réttri tækni útfrá fjarlægð og fellur.

  • Að velja rétta tækni miðað við aðstæður á réttu augnabliki getur skipt sköpum í alvarlegum aðstæðum. Eftir þessa æfingu munt þú hafa góða yfirsýn yfir hvað áhrifaríkt að gera, tímasetningu og í hvaða röð á að samansetja mótspyrnuna, Það mikilvægasta er að læra hvað á alls ekki að gera í ákveðni fjarlægð og aðstæðum.
  • Auk þess er farið í einfaldar en árangursríkar fellur sem er síðan sameinað því  sem farið var í hér að ofan.
  • Þessi æfing krefst nokkurrar högg og sparka í sparkpúða og sparringæfinga með hjálm og hanska

 

Læra að skilja grundvallaratriði varðandi líkamshreyfingu og hvernig hægt er gjörbylta getu sinni til að búa til orku í allri hreyfitækni.

  • Margir gera handatækni á sama hátt, hvort sem það er undirstöðu-tækni eða skilvirkni (í raunveruleika). Þetta er mjög óskilvirkt.
  • Gengið er út frá grunntækin en síðan farið yfir í að gera hana með meiri kraft og skilvirkni.

 

Stress æfing og stöðu leikir (settar upp ákveðnar aðstæður).

  • Hugmyndir að æfingum þar sem þú getur æft og prófað þig undir miklu álagi og stressi.
  • Að æfa undir miklu álægi og stressi er einfaldlega nauðsinlegt til að æfa sjálfsvörn á sem raunhæfastan hátt.
  • Einnig er farið í líkamstjáningu og undirbúning á gagnárás. Settar eru upp ákveðnar aðstæður sem unnið er útfrá með sjálfsvarnartækin og farið er í hvað má og hvað má ekki til að halda sér innan ramma lagana um nauðvörn.
  • Mjög áhrifarík og skemmtileg æfing sem skilur mikið eftir sig.
  • Í þessari æfingu er einnig farið í hræðslu, adrennalín líkamstjáningu og andlegan undirbúning.
  • Margir verða mjög hissa á hversu heftir (lamaðir) þeir verða þegar útgangspunktur æfinganna er breytt aðeins. En það er mjög lærdómsríkt.