Fréttir

Taekwondo | 15. janúar 2013

Æfingabúðir og Reykjavíkurleikar

Ágætu TKD iðkendur.

Í vikunni eru magnaðar æfingabúðir með ótrúlega góðu og faglegu TKD
fólki. Við erum svo heppin að fá Serbneska landsliðsþjálfara ásamt
tveim keppendum sem verða með æfingabúðir í bardaga (sparring). Einnig
fáum við Edinu Lents frá Danmörku og Portúgalann Sergio Ramos en bæði
hafa þau áralanga reynslu á stórmótum í poomsae.
Æfingabúðirnar fara fram bæði í Keflavík og í Reykjavík og geta því
iðkendur valið á milli (frjálst val). Í Reykjavík fara æfingabúðirnar
fram í íþróttahúsi Ármanns, í Laugardal. Takið með ykkur allar hlífar
á sparring æfingar.

Veislan heldur áfram!! Á föstudagskvöldi og laugardagsmorgun mun
Chakir halda dómaranámskeið í sparring, bóklegt á föstudagskvöldi og
verklegt á laugardagsmorgun. Dómaranámskeið fer fram á föstudagskvöldi
hjá ÍSÍ (bóklegt) og á laugardagsmorgun í Ármann, Laugardal og þá er
verklegt, þátttakendur eru því beðnir um að koma í íþróttafatnaði.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áður sótt námskeið en við erum opin
fyrir því að fleiri komst að ef sæti leyfa, það þarft því að skrá sig
á námskeiðið.

RIG mótið hefst svo á laugardegi eftir dómaranámskeiðið og þá einnig í
Ármann, Laugardal. Þann daginn er keppt í Cadet flokki, bæði bardaga
og poomsae (einstaklingsflokkar). Einnig verður keppt í poomsae para
og hópakeppni í öllum flokkum.
Á sunnudegi fer mótið fram í Laugardalshöllinni og er þá keppt í
junior og Senior í bardaga og í poomsae einstaklingskeppni.
Keppnisgólf verða 2 á laugardegi og 3 á sunnudegi.

Við hvetjum alla til þátttöku!! Það á enginn að missa af þessari
veislu sem er sú gómsætasta sem haldin hefur verið á Íslandi.

Skráning fer fram í hverju félagi sem tekur saman nöfn, aldur, belti
og greiðslu. Greiða skal TKÍ í einu lagi. Allir þátttakendur fá
armbönd við skráningu og þá þarf greiðsla að hafa borist TKÍ.

Viktun á undan dómaranámskeiðinu á föstudag hjá Chakir frá 19:00 til
21:00 fyrir utan fundarsal

Þátttökugjöld:
RIG Mótagjald fyrir 1 grein er kr. 5.000 (æfingabúðir innifalið)
RIG Mótagjald fyrir 2 greinar er kr. 7.500 (æfingabúðir innifalið)
Æfingabúðir 1 dagur kr. 1.000
Æfingabúðir 2 dagar kr. 2.000

?

?Nánari upplýsingar um æfingabúðirnar og mótið má fá á tki.is

Æfingarnar sem verða í Kefalvík eru eftirfarandi

Fimmtudag
kl 17-18 allir með rautt belti og hærra poomsae
kl 18-19 allir með blátt belti og neðar poomsae (ef einhverjir kunna hærri formin (7+) mega þeir líka mæta á fyrri æfinguna)
kl 19-20:30 12 ára og eldri rautt belti og hærra sparring
kl 20:30-22 12 ára og eldri blátt belti og neðar sparring

Föstudag
kl 14-15:20 allir með Blátt belti og niður poomsae
kl 15:30 - 17 allir með rautt belti + poomsae

Auk þessara æfinga eru 14 æfingar í Reykavík, þær eru líka innifaldar. Skoðið dagskrána á tki.is og þið megið fara á allar þær æfingar ef þið hafið borgað gjaldið. Borga skal til þjálfara, en munið að æfingabúðirnar eru innifaldar í keppnisgjöldunum á RIG.

http://www.tki.is/tki/frettir/rig-aefingabudir-uppfaerd-dagskra/