Æfingabúðir 11-13 maí Keflavík
Æfingabúðir 11-13 maí Keflavík
Helgina 11-13 maí n.k. verða æfingabúðir í Keflavík. Á æfingabúðunum munu kenna: master Paul Voigt, fyrrverandi landsliðsþjálfari Svíþjóðar og Íslands í bardaga sem hefur átt góðan feril sem þjálfari. Meisam Rafei, landsliðsþjálfari Íslands í bardaga og þrefaldur heimsmeistari. Hulda Rún Jónsdóttir, landsliðsþjálfari í formum og einn reynslumesti keppandi Íslands í poomsae. Helgi Rafn Guðmundsson yfirþjálfari Keflavíkur.
Dagskrá
Föstudag
18-19 Börn lægri belti
19-20 Börn hærri belti og fullorðnir
Laugardagur
12-13 Börn lægri belti
13:30 – 14:30 Börn hærri belti
13:30 – 14:30 Fullorðnir
14:30-15:30 Börn lægri belti
15:30-16:45 Fullorðnir og börn hærri belti
Allir þátttakendur á æfingabúðunum fá ókeypis í sund á laugardeginum. Sundlaug Reykjanesbæjar verður opin til kl 18.
Sunnudagur
11-12:30 Allir hópar
Hópar
Lág belti börn eru með gula rönd og hvítt belti, en ef börn eru 7 ára eða yngri með gula beltið þá ættu þau líka að vera í þessum hóp.
Há belti börn eru gult/appelsínugult belti- rauð rönd
Fullorðnir eru allir 13 ára og eldri og líka börn með rautt belti eða hærra.
Skráning
helgiflex@gmail.com fyrir miðvikudaginn 9. maí. Takið fram fullt nafn, aldur, belti og félag iðkanda.
Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá verður það sett á tki.is og keflavik.is/taekwondo. Fylgist því með áður en þið leggjið af stað á æfingarnar.
Verð
Ein æfing 1500kr
Laugardagur 3000
Helgin 4000
Greitt inn á reikning 0121-26-5774 kt. 501002-2750 með nafni iðkanda í skýringu ásamt því að senda kvittun á helgiflex@gmail.com