11 verðlaun á Norðurlandamótinu
Allur hópurinn
Nú um helgina var haldið Norðurlandamótið í taekwondo. Mótið var að þessu sinni haldið í Finnlandi, en Norðurlöndin skiptast á að halda mótið. Mótið var haldið í Kisakallion sem er íþróttaþorp skammt frá Helsinki. Þar er fyrsta flokks íþróttaaðstað fyrir alls kyns íþróttagreinar í fallegu umhverfi.
33 íslenskir keppendur kepptu á mótinu sem er stærsta íslenska lið á móti erlendis í taekwondo. Keppendur voru frá Keflavík, Aftureldingu, Ármanni, Fram, Hetti, Selfossi og Þór. Mikil og öflug uppbygging hefur verið í taekwondoíþróttinni undanfarin misseri og það sést í stórum landsliðshóp og góðum árangri, en árangurinn á þessu móti er sá besti sem sést hefur hjá Íslandi. Íslenska landsliðið vann til 5 gullverðlauna, 9 silfurverðlauna og 9 bronsverðlauna.
11 keppendur fóru frá Keflavík og stóðu sig með mikilli prýði á þessu móti og fengu m.a. 3 Norðurlandameistara. Auk þess fengu keppendur frá Keflavík 4 silfur og 4 brons. Þetta er langbesti árangur Keflvíkinga á erlendri grundu.
Keflvíkingarnir á NM
Ástrós Brynjarsdóttir varð í 2. sæti í tækni á mótinu, en það munaði 0,1 frá því að hún tæki gullverðlaun á móti heimamanninum. Flokkurinn var stór og sterkur og var þetta besti árangur Íslendings í tækni erlendis. Þá varð hún Norðurlandameistari í bardaga -47 kg flokki þar sem hún barðist mjög tæknilega og góða bardaga. Ástrós var valin taekwondo kona ársins hjá ÍSÍ fyrir árið 2012, en hún sýndi greinilega á þessu móti hvers vegna það var.
Ágúst Kristnn Eðvarðsson er ungur og efnilegur taekwondo kappi sem æfir alltaf af krafti. Hann keppti í -33 kg flokki drengja og stóð sig frábærlega. Hann vann báða sína bardaga með góðri tækni og keppnisanda. Ágúst er í feykigóðu formi sem sést vel á því að hann getur haldið einbeitingu út langa og erfiða bardaga án þess að það hægist á honum. Hann varð Norðurlandameistari í sínum flokki í bardaga.
Bjarni Júlíus Jónsson keppti í -65kg flokki drengja. Hann stóð sig vel og vann til gullverðaluna. Þetta er hans annað erlenda mót og í bæði sinn hefur hann komið heim með gullverðlaun. Bjarni er m.a. margfaldur Íslandsmeistari og bætti um helgina við Norðurlandatitli í safnið.
Norðurlandameistararnir Ástrós, Ágúst og Bjarni ásamt þjálfara sínum Helga
Aðrir keppendur stóðu sig einnig feykilega vel. Keflvíkingarnir voru til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan og sýndu góðan anda, hvort heldur í tapi eða sigri.
Önnur verðlaun Keflvíkinga voru
Sverrir Örvar Elefsen - Bronsverðlaun í bardaga og silfurverðlaun í paratækni
Svanur Þór Mikaelsson - Silfurverðlaun í bardaga og 4. sæti í tækni.
Karel Bergmann Gunnarsson - Bronsverðalun í bardaga
Helgi Rafn Guðmundsson - Bronsverðlaun í bardaga
Ægir Már Baldvinsson - Bronsverðlaun í bardaga
Adda Paula Ómarsdóttir - Silfurverðlaun í hópatækni