Fréttir

Keflvíkingar Bikarmeistarar 2013
Taekwondo | 8. maí 2013

Keflvíkingar Bikarmeistarar 2013

 

Um helgina var haldið þriðja og síðasta mótið í Bikarmótaröð taekwondo sambands Íslands. Mótið var haldið í íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut. Rúmlega 200 keppendur tóku þátt frá 8 félögum. Á laugardeginum kepptu þeir sem eru 11 ára og yngri og á sunnudeginum kepptu 12 ára og eldri. Keppt var í tveimur greinum, bardaga og tækni.


Keflvíkingar voru með sterkt lið, 47 keppendur og sigruðu mótið. Keflvíkingar voru með 30 gull, 20 silfur og 17 brons. Á laugardegi fengu Keflvíkingar 127 stig í liðakeppninni á meðan Afturelding var í 2. sæti með 73. Á sunnudegi fengu Keflvíkingar svo 100 stig og Afturelding í 2. með 58. Heildarstigafjöldi yfir helgina voru


1. Keflavík 227

2. Afturelding 131

3. Ármann 117


Keflvíkingar voru þá með bestan árangur Bikarmótaraðarinnar, enda sigruðu þeir öll þrjú mótin og vörðu því Bikarmeistaratitlinum. Þess má geta að Keflvíkingar hafa þá sigrað öll 5 mótinu á tímabilinu 2012-2013. Það telja þrjú Bikarmót og tvenn Íslandsmót og setja því enn og aftur rök fyrir því að vera sterkasta félag landsins.


Keppendur mótsins voru


Tækni

Drengur :Bjarni Júlíus Jónsson - Keflavík

Stúlka :Ástrós Brynjarsdóttir - Keflavík

Karl : Helgi Rafn Guðmundsson - Keflavík

Kona  María Guðrún Sveinbjörnsdóttir - Afturelding


Bardagi

Drengur : Karel Bergmann Gunnarsson - Keflavík

Stúlka : Þuríður Nótt - Höttur

Karl : Ari Normandy - Keflavík

Kona : Margrét Edda Gnarr - Selfoss


Samanlagður árangur

Drengur : Bjarni Júlíus Jónsson - Keflavík

Stúlka : Ástrós Brynjarsdóttir - Keflavík

Karl : Helgi Rafn Guðmundsson - Keflavík

Kona : Herdís Þórðardóttir - Afturelding